Það er bara eitthvað svo æðislegt við það að geta mótað þitt eigið skraut, á hverjum degi geturðu verið kominn með nýtt mynstur út í glugga! Það er auðvelt að móta það og það tengist í vegg með snúru þannig að gleymdu því að vera að vesenast með batterí :)
Okkur vitanlega fæst ekkert slíkt skraut hérlendis en í yfir tvö ár hefur það tíðkast hjá okkur KOKO að bjóða upp á Stjörnutréð á góðum afslætti yfir jólatímabilið.